Nú er kjördagur að nálgast og stóra stundin að renna upp. Í mínum huga er mikilvægast þegar hér er komið að hætta að takast á um einstök áhersluatriði sem fólk vill að séu inni í nýrri stjórnarskrá eða atriði sem menn telji að eigi þar ekki heima. Það sem ég tel að við þurfum að einbeita okkur að NÚNA er að vinna ötullega að því að ná sem allra mestri kjörsókn til þess að þessi merkilega lýðræðislega tilraun heppnist sem best.
Það er mikilvægt að menn geri sér grein fyrir því hve í raun er verið að færa kjósendum mikið tækifæri til að hafa áhrif á gang mála við þá uppbyggingu samfélags okkar sem framundan er.
Ég hef bent ítrekað á þá staðreynd að stjórnlagaþingi eru nokkuð fastar skorður settar í verkefni sínu. Í því sambandi leyfi ég hér með að vitna í skrif mín í fyrstu greininni sem ég setti fram vegna framboðs míns:
"Stjórnlagaþingið ber þá miklu ábyrgð á herðum að koma sér saman um tillögu að nýrri stjórnarskrá okkar sem eiga að verða okkar grundvallarlög til langrar framtíðar. Örnámskeiðið sem ég sótti og haldið var á vegum Háskólans í Reykjavík fyrir nokkru og fundur í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri hafa skotið stoðum undir þá sýn sem ég hafði á það hvernig stjórnlagaþingið á að nálgast þetta mikilvæga verkefni. Lögin um Stjórnlagaþing og skipulag þess segir ekki nema að hluta til um verkefnið því sú staðreynd að stjórnarskrárfrumvarp þarf að samþykkja tvisvar af Alþingi til að ná fram að ganga setur Stjórnlagaþingi ákveðnar skorður sem þarf að hafa í huga. Auk þess má búast við að þjóðaratkvæðagreiðsla muni einnig koma til því ég vænti þess að tillaga þar um komi frá Stjórnlagaþingi til Alþingis. Það er auðvitað nauðsynlegt að þjóðin staðfesti nýja stjórnarskrá lýðveldisins beint í þjóðaratkvæðagreiðslu og að öðruvísi fáist hún ekki staðfest.
Af ofangreindum ástæðum þarf Stjórnlagaþing að endurspegla þjóðarvilja í þessu verkefni sínu og hefur því ekki svigrúm til róttækra umbyltinga á grunngildum stjórnarskrárinnar nema að því marki sem ljóst er að þjóðin og Alþingi vill. Viðfangsefnið er ekki lítilvægara vegna þessa, þvert á móti er það afar verðugt verkefni að freista þess að ná fram skýrri tillögu að nýrri stjórnarskrá sem fær hljómgrunn meðal þjóðarinnar og Alþingis. Það er hins vegar jafn ljóst að ýmsar hugmyndir sem fram hafa verið settar um mjög róttækar breytingar á einstökum ákvæðum stjórnarskrár og eru þess eðlis að um grundvallarbreytingar er að ræða er ólíklegt að náist um samstaða á Stjórnlagaþingi og því mikilvægt að einbeita sér að því verkefni að ná fram nauðsynlegum breytingum og lagfæringum sem leiði til raunverulegs ábata fyrir samfélag okkar og treysti þau grunnlög sem við þurfum nauðsynlega að eiga til að tryggja mannréttindi og endurreisa okkur sem þjóð með skýra þjóðarsál að nýju eftir hremmingar undanfarinna ára."
Það er því mikilvægt að festast ekki í því að horfa á einstaka áherslupunkta frambjóðenda en skoða fremur hvort þeir hafi jákvæða sýn á störf stjórnlagaþingsins, þ.e.hafii raunverulegan vilja til að vinna að því með samþingmönnum sínum, burtséð frá einstökum eigin áhersluatriðum, að semja og leggja fram tillögu að stjórnlagafrumvarpi sem nái utan um vilja meirihluta þjóðarinnar og því líklegt til að hljóta hljómgrunn hjá henni. Erfitt yrði fyrir Alþingi að hafna slíkri tillögu.
Ég treysti því að þjóðinni takist að velja inn á stjórnlagaþing breiðan hóp fólks sem hefur þessa jákvæðu sýn á störf þingsins sem ég nefni hér að ofan. Þá skipta einstök áhersluatriði ekki máli og menn taka einfaldlega höndum saman um þá vinnu sem ég kallaði í einum pistla minna "að fanga þjóðarviljann". Það er það eina sem skiptir máli í stöðunni. Við þurfum gott fólk á þingið sem endurspeglar þjóðfélagið nokkuð vel og er líklegt til að vinna að heildarsátt um tillögu að stjórnlagafrumvarpi sem fær hljómgrunn hjá þóðinni og hún getur fylkt ser um. Og það burtséð frá áhersluatriðum einstakra þingmanna sem geta verið mismunandi á ýmsa lund.
Höfum því í huga þegar við veljum okkar frambjóðendur:
- Ekki einblýna á einstök áhersluatriði, heldur skoða hvort komi fram vilji til samstarfs um raunverulegt verkefni þingsins og hvort frambjóðendur lýsi vilja til að skoða með opnum hug hugmyndir annarra.
- Reyna að ná fram með vali sínu lista sem hefur breiða skírskotun, þ.e. endurspegli íslenskt samfélag í dag eins og kostur er.
- Síðast en ekki síst, hvetja samborgara sína duglega til að fara líka á kjörstað og KJÓSA.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli