22 nóvember 2010

Hversu mikilvægt er að kjörsókn verði góð?

Ég hef orðið var við það að sumir ætla sér ekki að kjósa vegna einhverra undarlegra forsenda sem ég næ ekki alveg að átta mig á. Það vita allir sem hafa verið að fylgjast með að stjórnlagaþingið er aðeins ráðgefandi þing fyrir Alþingi ætlað að ná utan um það sem þjóðin vill sjá í stjórnarskrá sinni og semja stjórnlagafrumvarp sem kristallar þann vilja. Það er síðan Alþingis að afgreiða slíkt stjórnlagafrumvarp og samkvæmt gildandi stjórnarskrá þarf það að samþykkjast af Alþingi tvisvar óbreytt til að taka gildi, þ.e. af tveimur þingum með kosningum á milli. Það er augljóst að stjórnlagaþingið sem slíkt hefur ekki völd eins og Alþingi og ef ekki tekst að semja stjórnlagafrumvarp sem fær hljómgrunn meðal þjóðar, þá einfaldlega nær stjórnlagafrumvarpið ekki fram að ganga. Þess vegna er svo mikilvægt að fólk nýti atkvæðisrétt sinn núna og velji fólk sem það treystir til að semja stjórnlagafrumvarp sem fær hljómgrunn hjá þjóðinni.  

Ég veit að flestir munu ná því að sjá heildarmyndina og átta sig á mikilvægi þess að kjósa í þessum kosningum. Ef kosningaþátttaka verður góð og á þingið sest fólk sem getur útfært grunnlög okkar, nýja stjórnarskrá, þannig að hún verði betri rammi en sú ágæta stjórnarskrá sem við eigum í dag, utan um störf löggjafans og aðra þætti stjórnskipunar okkar, þá er markmiðinu náð.  Þjóðinni hefur ekki áður verið gefið svona tækifæri. Það verður erfitt að hafna stjórnlagafrumvarpi sem augljóst er að hefur náð hljómgrunni meðal þjóðarinnar og þetta er okkar tækifæri til að hafa áhrif á það án þess að hefðbundnir stjórnmálaflokkar séu að hamla verkinu eins og í raun hefur verið staðan í allri umfjöllun um endurbætur á okkar ágætu stjórnarskrá frá lýðveldisstofnun. Það vita allir að þörf er á "uppfærslu á stjórnarskránni" og við VERÐUM að nýta okkur það tækifæri sem okkur er nú gefið til að hafa áhrif á það verk. Stjórnarskráin inniheldur grunnlög þjóðarinnar og það á að vera þjóðin sem segir þeim sem hún felur stjórn landsins á hverjum tíma hvernig ramma þeir eigi að starfa innan.
Tökum því öll höndum saman, sýnum hvað í  okkur býr og kjósum á kjördag, ... eða utankjörfundar fyrr ef fólki hugnast það betur!!  Aðalatriðið er að við kjósum og gerum með því okkar besta til þess að láta þessa tilraun takast. Verði kosningaþátttaka góð fær stjórnlagaþingið meira vægi og þann drifkraft sem það þarf til að fanga vilja þjóðarinnar og móta í nýju stjórnlagafrumvarpi. Fái stjórnlagaþingið þetta vægi eru meiri líkur en minni til þess að stjórnlagafrumvarp það er frá því kemur endurspegli skýrt vilja þjóðarinnar og þannig tekst okkur ætlunarverkið.  Því stjórnlagafrumvarpi getur Alþingi ekki hafnað. 
Eigum við sem kjósendur að láta það spyrjast um okkur að við tuðum bara úti í horni og látum þetta tækifæri ganga okkur úr greipum? Það má ekki gerast!
KJÓSUM ÖLL!!!


Engin ummæli:

Skrifa ummæli