04 desember 2010

Þakkir og hugleiðingar í kjölfar kosninga

Mig langar til að færa öllum þeim er veittu  mér stuðning í þessu brölti mínu í framboði til stjórnlagaþings kærar þakkir fyrir.  Eftir að hafa skoðað öll gögn og fylgst með umræðu í kjölfar kosninganna vil ég einungis segja að mér sýnist sú flókna talningaaðferð sem notuð er hér koma fram með þá niðurstöðu sem sanngjörnust er m.v. úrslitin hvernig sem á mál er litið.  Mér sýnist aðrar aðferðir sem notaðar hafa verið í gegn um tíðina ekki geta skilað niðurstöðu sem endurspeglar betur vilja kjósenda. Ég óska því kjörnum fulltrúum á stjórnlagaþing til hamingju með kosninguna og óska þeim velfarnaðar í störfum sínum.
Það er eitt atriði sem mér finnst vert að benda á í ljósi umræðna um það að stjórnlagaþing hafi ekki mikið vægi þegar horft er til dræmrar kosningaþátttöku.  Það er einfaldlega svo í lýðræðissamfélagi eins og okkar að þeir sem ekki nýta atkvæðisrétt sinn í kosningum eru með því að veita þeim sem það gera umboð sitt til að fara með þetta vald.  M.ö.o. þeir sem ekki nýta sér þennan rétt sinn geta ekki komið eftir á og nöldrað yfir  því að stjórnlagaþingið sé ekki  með það atkvæðavægi á bak við sig sem það þarf til að framfylgja verkefni sínu. Þeir einfaldlega fólu þeim sem sýndu málinu áhuga og fylgdust með það vald að kjósa rétta fólkið til verka.
Ég óska nýkjörnu stjórnlagaþingi velfarnaðar í störfum sínum og hef fulla trú á að það fólk sem þingið skipa geti unnið það verðuga verk að "fanga vilja þjóðarinnar" og semja stjórnlagafrumvarp sem fær hljómgrunn hjá þjóðinni og Alþingi.
Mig langar svo í lokin að vísa til greinar eftir meðframbjóðanda sem lýsir á skemmtilegan hátt upplifun af framboði til stjórnlagaþingsins sem ég hygg að lýsi um margt upplifun okkar margra annarra sem tókum þátt.

Upplifun Agnars - grein frambjóðanda til stjórnlagaþings

Hafið það svo öll sem allra best um ókomna tíð.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli